BloGGið miTT.. MEisTari HilDuR
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti
15.03.2008 01:07:36 / glow8

ný bloggsíða

jæja er komin með nýja bloggsíðu svona að mestu
jæja Fanney bara fyrir þig þá set ég slóðina hingað inn

http://www.hildursv.blog.is


kv hinu megin:d


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.02.2008 18:17:41 / glow8

jæja hef svo sem ekkert að segja....

en hérna eru smá staðreyndir um karlmenn.
ja hef það annars fínt bara brjálað að gera;)


30 Setningar karlmanna:
.. sem þú munt ALDREI heyra karlmann segja:

1. Ég ætla að fá mér kók. Get ég fært þér eitthvað í leiðinni?

2. Ég hafði rangt fyrir mér. Þú hafðir á réttu að standa og ég biðst afsökunar á að hafa rifist við þig.

3. Brjóstin á henni eru aaaaalt of stór!

4. Stundum langar mig bara að láta halda utan um mig.

5. Jú, elskan mín...ég ELSKA að nota smokk.

6. Það er langt síðan við höfum farið í Kringluna. Komum endilega að versla og ég skal geyma töskuna þína meðan þú mátar.

7. Ég er hættur að fara á völlinn með strákunum. Kúrum frekar saman og horfum á Pretty Woman.

8. Ég held að við höfum villst. Stoppum við næstu bensínstöð og spyrjum til vegar.

9. Það er ekki ofsögum sagt að karlmenn séu lélegir ökumenn. Þetta fífl þarna gaf ekki stefnuljós!

10. Ég er fárveikur, en ég get alveg séð um mig sjálfur.

11. Neih...mig langar ekkert að sjá brjóstin á systur þinni!

12. Ohhhh...við erum að verða of sein í kirkju!

13. Það er alltof mikið af nektaratriðum í þessari mynd.

14. Eru tengdó að koma í heimsókn aftur? ÆÐI!

15. Ég er kominn með leið á bjór...ég ætla að fá mér trópí.

16. Alltílagi, ég skal sofa á blauta helmingnum.

17. Ég er með alltof stórann rass!

18. Ég ætla að kaupa mér Yaris. Þeir eyða svo litlu.

19. Mér finnst frábært að skokka. Ég hef bara ekkert í við þig, elskan mín....

20. Er hægt að fá einhverja skyrtu í stíl við þessar buxur?

21. Hvar er "rauða serían" bækurnar mínar?

22. Heyrðu elskan, ég er að fara í búðina. Á ég að kaupa túrtappa eða dömubindi fyrir þig í leiðinni?

23. Klukkan er soldið margt. Klæddu þig aftur í fötin og ég skal skutla þér heim.

24. Til fjandans með enska boltann!!! Horfum á gamla Melrose Place þætti =)

25. Ég fæ oft standpínu þegar ég horfi á Opruh Winfrey.

26. Mér finnst loðnir rassar sexý!

27. Neibb mig langar ekki í annan bjór. Ég þarf að vinna á morgun.

28. Svakalega er Tom Cruise ýkt sætur!

29. Ég veit að þú varst að totta mig....en mig langar svo að kyssa þig.

30. í Guðanna Bænum farðu í nærföt kona!!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 22:53:46 / glow8

ja hérna hér já há og jæja

jæja voða er maður duglegur að blogga eða þannig....humm jæja en vegna tímaskorts og smá leiti hef ég bara ómugulega haft tíma í þetta....

jæja er byrjuð á fullu í skólanum aftur og er farin líka á fullu í ræktina..ég fékk mér einkaþjálfar og nú á að taka þetta með trukki. Er reyndar búin að vera með magavesen núna síðustu 2 daga en vona að það lagist sem fyrst, hef á tilfinninguni að magin sé fullur af grjóti.

jæja hvað um það. En svo á bara að halda áfram á fullu og taka þetta með stæl.

læt ykkur vita hverning gengur.

 

hey já og er brjáluð yfir nýjum meirihluta borgarstjórnar, og hvað þá út af nýjum borgarstjóra!!!!!!! Hvað er í gangi??? maður bara spyr sig.....


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 01:14:19 / glow8

gleðileg jól

Gleðileg jól elskurnar mínar

Hafðið það sem best og njótið friðar í hjarta og sál, missið ykkur ekki í neyslubrjálæði og elskið hvort annað:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.12.2007 21:56:21 / glow8

jóla jóla

jæja nú er tíminn, hrækja í lófa sér, grípa skúringamoppuna því nú skal þrífa skítinn því nú eru að koma jól!!!!!!!!!!! döööö nei, jólin koma sko alveg þótt ég geti ekki speglað mig í parketinu og jólin koma sko alveg þótt ég eigi ekki fulla skápa af nýbökuðum smákökum. það er sko fín búð út á horni sem er með fullar hillur af smákökum....ja hérna hér það er einhver kæruleysi í mér þessi jól, vill bara hafa það kósý og slappa af. Er reyndar búin að vera dugleg og kaupa allar jólagjafirnar nema tvær en ég veit svo sem hvað það á að vera:) jæja en mig hlakkar bara til að komast í smá frí jólast smá með fjölskylduni, borða á mig gat og silast svona á milli sófa. Og svo auðvitað að knúsast með elsku snúlluni minni. Æi hún er svo mikil jólaálfur, tætandi jólapappírinn þegar ég er að reyna að pakka inn:) bara sætt.

en jæja nóg í bili


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.12.2007 00:12:57 / glow8

sma svona

jæja þá er ný afstaðin afmælisveisla hjá prinsessuni á heimilinu, daman varð 1 árs núna 5 des, til hamingju með afmælið ástinn mín:) jæja er við ákváðum bara að bjóða stór fjölskylduni í afmæli í dag og heppnaðist það bara vel, kökurnar vinsælar að vanda þótt bakrameistarinn segji sjálfur frá:) jæja tímin líður og núna eru að koma jól, mín er búin að skreyta og er ég ekki frá því að ég sé komin í smá jólaskap. Jæja en kannski debetreikningurinn ekki.... jæja en allavega er allt gott af okkur.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.11.2007 13:02:04 / glow8

ja hérna hér

ja hérna hér, nú er maður bara búin í skólanum þessa önn, búin að fara í próf og held að mér hafi gengið ok. Þarf reyndar að bíða í 2 vikur eftir að vita einkunn. Nóg að gera í vinnuni og maður farin að huga bara að jólunum. Daniella er farin að standa alveg sjálf og er að reyna að fara að labba af stað. Hún er svo duglega krúttið mitt. Svo verður maður að fara að huga að afmæliskaffi, litla daman bara að verða 1 árs í næsta mánuði. Mér finnst svo stutt síðan ég var upp á fæðingardeild með hana pínulita í fanginu:) Litla ástin mín. Svona er þetta tímin líður.....

Annars er bara fínt að frétta af öllum, Kærastan hans Elisio kom í heimsókn síðustu helgi og það vera bara fínt. Voða næs helgi. 

Það er nóg að gera í vinnuni hjá kallinum og við farin stax að hlakka til að fá smá jólafrí. En já nú þarf maður að fara að stessast með jólagjafir....ja hérna hér


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.11.2007 09:40:02 / glow8

erfið fæðing á bloggi...........

af hverju er ég með blogg????? ekki eins og ég sé mikið að tjá mig hérna. En ég veit ekki það er bara einhver haustleti í mér, ég vill bara í rólegheitunum og nenni ekki neinu. Annars er mest lítið að frétta. Er búin að vera skaka dugleg í skólanum. og er einmitt að sökkva mér niður í bækur núna því það er að koma próf. Svo er ég búin að vera líka lasin og allt það. Litla snúlla er orðin svaka dugleg. Er farin að labba með og er alltaf í svaka stuði. Það verður svo enþá meira stuð þegar hún fer að labba alveg sjálf. Við erum búin að skreppa nokkrum sinnu í sveitina og það er alltaf gott. Svo er maður búin að kíkja aðeins út á lífið. Get samt ekki sagt að ég nenni því oft. Allt gengur vel í vinnuni og ég er núna búin að vera að vinna 50 % en mun auka við mig núna um jólin. Væri samt alveg til í að vinna bara svona alltaf. En ef ég væri með miljón og tíu í laun þá myndi það ganga upp:lol:

en jæja við leikskóla starfólk erum nú búin að fá smá launhækkun....vonandi er þetta allt í áttina.

 

ja og allir sem hafa átt afmæli og svollis þá segi ég bara til Hamingju með afmælið.


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.10.2007 22:37:07 / glow8

herðu smá hérna

herðu ju hérna er smá stolið af síðuni hjá henni Hófí, ótrúlega fyndið...

 

 

Stjörnumerkin eftir að kynlífi lýkur....

Hrútur: "Ok , gerum það aftur!?"
Naut: "Ég er svangur / svöng--- pöntum pizzu"
Tvíburi: "Veistu hvar fjarstýringin er?"
Krabbi: "Hvenær giftum við okkur??"
Ljón: "Var ég ekki frábær??"
Meyja: "Ég verð að þvo rúmfötin?"
Vog: "Mér fannst þetta gott ef þér fannst það líka"
Sporðdreki: "Ég ætti kannski að tengjast þér?"

Bogamaður: Ekki hringja í mig-ég hringi í þig.                                                                                                                                                                                                                  Steingeit: "Áttu nafnspjald?"
Vatnsberi: "Gerum það núna í engum fötum!"
Fiskur: "Hvað sagðist þú annars heita?"

 

gaaaaaaaaaa ég er meyja 


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.10.2007 22:29:33 / glow8

er enn á lífi

sorry fólk er alveg að fara að koma með blogg....er mjög busy þessa dagana og svo er andin ekki við eins og er...

 

kv Hildur ekki bloggari 


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.09.2007 23:53:40 / glow8

rokrassgat

jæja það er nú mest lítið að frétta þessa dagana, bara komin rigning og rokrassgat. Komið haust, en ég fíla sko alveg haustið og finnst voða kósý að kúra við kertaljós og hafa það gott.Nú er ég byrjuð á fullu í skólanum og þetta er voða spennó, kennt eitt kvöld í viku. Nú er ég líka byrjuð að vinna aftur og það er bara ágætt, fer bara rólega af stað. Er semsagt bara að vinna 9-13. sem er voða fínt, svo sækji ég snúlluna þegar hún er búin að lúlla hjá dagmömmuni. Aðlögunin hjá dagmömmuni hefur gengið upp og ofan. Gékk voða vel fyrst en svo var daman að væla bara allan daginn, hún sem er svo kát og góð. En svo kom nú upp úr krafsinu að þetta var nú ekki bara frekja sem ég og dagmamman héldum heldur var daman komin með eyrnabólgu og er sem sagt búin að vera veik núna síðustu viku. Hún er orðin hress núna og liggur líka miklu betur á henni, allt gengur miklu betur. Jæja ég skellti mér á djammið með desskvísunum síðasta laugardag og það var æðislega gaman, við fórum fyrst út að borða á Carúsó og það var geggjað að borða. Við sátum svo og spjölluðum yfir góðum koktelum og fleiru góðu:) Við skelltum okkur svo niður á Nasa á nægtísball:) oh sko það voru bara spiluð lög frá því að ég var svona 14- 18. Ekkert smá mikil stemming og afþví að við þekktum rétta fólkið fórum við í VIP og fengum frítt inn og svo var frír bjór líka....það var sko þambað:=) svo röltum við um bæin kíktum aðeins inn á Hressó en það var allt of troðið þar. Svo fórum við smá rölt hjá Gauknum og Glaumbar. SVo var ferðini haldið heim enda klukkan líka orðin 4.30 eða svo um til. Við erum nú kellingar með börn sko. Svo var mín vöknum með dömuni kl 8.00 þvílíkt hress og kát. Lagði mig svo bara með henni seinna um daginn.

en voða spes að fara svona í bæinn því það er allt of langt síðan ég fór síðast en þetta var bara þrusu gaman. En það verður nú ekki svona langt þangað til næst því það verður svaka geim í gangi hjá okkur 6. okt. Maður er meiri segja búin að redda barnapíu og allt, svona eina sem vaknar líka með snúlluni....amman sko he he

 

nú og svo er maður að fara í réttirnar og það verður svaka stuð:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 12:30:40 / glow8

afmæli bara

haldið ekki að kellan eigi afmæli í dag:) og mér finnst ég vera hundgömul! fer að styttast í þrítugsafmæli bara....woww

ég ætla bara að fara í skólan í dag, ekki gera neitt annað:) bara letidagur því ég er svo gömul:) 


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.08.2007 14:48:54 / glow8

lífið komið í fastar skorður:)

jæja jæja er ekki komin tími á smá blogg, ja það er búið að vera nóg að gera á þessum bæ. Við fjölskyldan erum flutt í Fífuselið og gengur bara rosa vel. Við byrjuðum á að mála og ditta að íbúðini og svo var bara drifið sig að flytja. Við erum búin að koma okkur ágætlega fyrir og það er bara svona smá dútl sem er eftir að gera. Annars er ég eitthvað smá óheppin því ég keypt nýjan tölvuskáp fyrir heimilistölvuna en nei þegar að kallinn minn var búin að hamast við að skrúa þessu drasli saman þá passar þessi skápur ekki fyrir tölvuna....sem er notabene ný þannig að maður hélt að það væri bara standard stærð á þessu....og þessi tölvuskápur er seldur undir tölvur...merkilegt nokk.en ja við erum búin að fara og skipta þannig að það reddast, ja og svo nei ég er búin að vera að reyna að finna stofuskáp undir sjónvarpið en nei þegar ég sé eitthvað sem mér lýst á þá er það annahvort ekki til í augnablikinu eða er hætt í sölu....hvað er málið...

 

en ja annars er bara allt gott að frétta, kallinn er farin að vinna en ég fer ekki að vinna fyrr en í byrjun september og litla snúllan fer að byrja hjá dagmömmu...oh ég er komin með smá í mallan en þetta á eftir að vera allt í lagi er þaggi???:)

við mæðgurnar kíktum á gaypride um helgina með Júlíönu og það var rosa gaman, ekkert smá mikið af fólki. Alltaf svo gaman að vera með í þessu:)

 

en jæja þetta er svona það helsta......


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.07.2007 22:04:24 / glow8

busy kona hér......

helló bara að láta vita að það er nóg að gera....fékk lyklana i dag....er að pakka á fullu og má ekkert vera að þessu...

 

bið bara að heilsa ykkur


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 11:48:15 / glow8

íbúðin.....

jæja ég ætla bara að gefa smá upplýsingar um nýju íbúðina....það er nóg að gera svo maður hefur ekki tíma í þetta blogg en allavega íbúðin er í seljahverfinu....Fífuseli voða kósý staður. þetta er 4 herbergja íbúð í fjölbýli, það eru 6 íbúðir í stigagangi og 2 stigagangar svo þetta er ekkert of stórt:) Það þarf eiginlega ekkert að gera fyrir íbúðina nema kannski mála og svo þarf að skipta um gólfefni en það er ekkert sem liggur það mikið á. það er allt nýtt á baðinu og eldhúsinréttingin er ný líka. Svo er húsið allt nýklætt og velstandsett....sem er mikil kostur svo að maður þurfi ekki að hafa áhyggjur af einhverju þannig. Það er leikgarður fyrir framan húsið með leiktækjum svo það er rosa fínt og voða rólegt þarna í kring. Íbúðin sjálf er 102 fermertar og svo er reyndar geymsla niður í kjallara sem fylgir með íbúðini. Ja svo er þvottahús og búr inn í íbúðini. Svo ég bara þokkalega ánægð með þetta og vona nú að það eigi eftir að fara vel um okkur þarna. Ja og við fáum íbúðina 16. júlí......svo það er bara að pakka og pakka....næstu vikur..en bara spennó:)

 

jæja ég vildi bara gefa smá upplýsingar til ykkar sem voruð eitthvað að spá:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Klukkan
Dagsetning
28. janúar 2012
Leitarbox

RSS tengill