af hverju er ég með blogg????? ekki eins og
ég sé mikið að tjá mig hérna. En ég veit ekki það er bara
einhver haustleti í mér, ég vill bara í rólegheitunum og
nenni ekki neinu. Annars er mest lítið að frétta. Er búin að
vera skaka dugleg í skólanum. og er einmitt að sökkva mér
niður í bækur núna því það er að koma próf. Svo er ég búin að
vera líka lasin og allt það. Litla snúlla er orðin svaka
dugleg. Er farin að labba með og er alltaf í svaka stuði. Það
verður svo enþá meira stuð þegar hún fer að labba alveg
sjálf. Við erum búin að skreppa nokkrum sinnu í sveitina og
það er alltaf gott. Svo er maður búin að kíkja aðeins út á
lífið. Get samt ekki sagt að ég nenni því oft. Allt gengur
vel í vinnuni og ég er núna búin að vera að vinna 50 % en mun
auka við mig núna um jólin. Væri samt alveg til í að vinna
bara svona alltaf. En ef ég væri með miljón og tíu í laun þá
myndi það ganga upp
en jæja við leikskóla starfólk erum nú búin að fá
smá launhækkun....vonandi er þetta allt í áttina.
ja og allir sem hafa átt afmæli og svollis þá
segi ég bara til Hamingju með afmælið.